Matarappið fyrir heimilið
Hvað er í matinn í kvöld? búrið er með þetta.
búrið heldur utan um matinn á heimilinu: hvað er til í skápunum, hvað á að elda í vikunni og hvað þarf að kaupa. Öll fjölskyldan sér það sama, í símanum og tölvunni.
Engin lykilorð. Skráðu þig inn með Google eða kóða í tölvupósti.
Svona virkar það
Þú kaupir inn og eldar. búrið heldur utan um restina.
Engir töflureiknar og engir miðar á ísskápnum. Svona gengur vikan fyrir sig með búrinu.
- 1
Skráðu það sem er til
Taktu mynd af kvittuninni eða innkaupunum og búrið skráir vörurnar á sinn stað, í ísskápinn, frystinn eða skápana. Uppskriftir og matseðla úr glósunum má flytja inn líka.
- 2
Fáðu matseðil vikunnar
Á laugardagsmorgnum stingur búrið upp á kvöldmat fyrir næstu viku, út frá því sem er til, því sem rennur út og því sem ykkur finnst gott. Þið haldið því sem hentar.
- 3
Verslið saman
Það sem vantar í matseðilinn fer á innkaupalistann. Hann uppfærist hjá öllum á meðan verslað er og virkar líka án netsambands.
Og hringurinn lokast: það sem er keypt fer í birgðirnar og það sem er eldað fer úr þeim.
Hvað búrið gerir
Hugsað fyrir hversdaginn
Lítil hjálp á réttum tíma, svo minna fari til spillis og kvöldmaturinn verði ekki dagleg ráðgáta.
Spurðu búrið
„Eigum við allt í kvöldmatinn?“ „Hvað get ég eldað úr kjúklingnum?“ búrið svarar út frá því sem er til heima og getur breytt matseðlinum og listanum fyrir þig.
Lærir hvað ykkur líkar
Segðu „Ekki þetta“ við tillögu og búrið man hvers vegna. Ofnæmi, mataræði og fastir liðir eins og fiskur á mánudögum ráða ferðinni í öllum tillögum.
Áður en það rennur út
búrið lætur vita kvöldið áður en eitthvað rennur út, svo það endi í pottinum en ekki í ruslinu.
Beint í Krónuna
Tengdu Krónuaðganginn og sendu innkaupalistann beint í körfuna eða í Krónuappið.
Hvað kostar maturinn?
Verðin af kvittununum safnast saman. Sjáðu hvað hefur hækkað og gróflega hvað það kostar sem fer í ruslið.
Uppskriftir fjölskyldunnar
Geymdu uppskriftirnar á einum stað, settu þær á matseðilinn og sjáðu strax hvað vantar.
Fyrir alla á heimilinu
Bjóddu makanum, krökkunum eða ömmu. Allir sjá sömu birgðir, sama matseðil og sama innkaupalista, og allir geta bætt við, hakað við og spurt búrið.
Á heimaskjáinn
Settu búrið á heimaskjáinn og notaðu það eins og app, í símanum eða tölvunni.
Líka í búðinni
Innkaupalistinn opnast og virkar án netsambands.
Engin lykilorð
Hver og einn skráir sig inn með Google eða kóða í tölvupósti.
Á íslensku og ensku
Hver og einn velur sitt tungumál.
Byrjaðu í kvöld
Skráðu þig inn, segðu búrinu aðeins frá heimilinu og fáðu fyrsta matseðilinn. Það tekur örfáar mínútur.
Prófa búrið